Saturday, April 07, 2007

4.mánaða.

Hann Andri Dagur er 4.mánaða í dag og hélt upp á það með því að velta sér frá baki yfir á maga í fyrsta skipti og sitja uppréttur án aðstoðar í nýja stólnum sínum. Foreldrarnir eru að springa úr stolti, ef að við bregðumst svona glöð við þessum áföngum þá veit ég ekki hvernig við verðum þegar að hann byrjar að labba.