Thursday, January 25, 2007

Traustur vinur getur gert...

Já gott er að eiga góða vini og ekki er verra ef að
þeir eru stórir og stæðilegir. Mikið verður fínt fyrir
Andra Dag að geta kallað á Grím Loga og Stein Loga
þegar einhver verður leiðinlegur við hann.
En að sama skapi spyr maður sig, er hægt að vera
leiðinlegur við einhvern sem er svona æðislegur?























































Jæja.

Þá er maður bara orðinn pabbi og tilfinningin er... Já ætla ekkert að reyna binda hana í orð enda eru þau annsi fátækleg og geta eiginlega ekki lýst þessu ástandi, sama hversu sterk lýsingarorðin eiga að vera. Finn mig knúinn til þess að sýna myndir og segja sögur af ævintýrum nýju fjölskydunnar og vinum hennar, vonandi hefur þú gaman af.