Friday, May 02, 2008

Ungfrú Reykjavík!

Er litla systir mín, til hamingju með titilinn! Nú verður ekki aftur snúið. Við fjölskyldan mættum að sjálfsögðu á Broadway til að sýna stuðning og svei mér þá ég held að hann hafi bara hjálpað stelpunni. En persónulega þá fór ég til að sjá Mercedes Club, eða MC eins og ég kalla þau. Ég fékk reyndar ekki áritun á brjóstið eins og ég ætlaði mér en það kemur bara um helgina þegar að ég fer með öllum bestu vinum mínum á hlustendaverðlaun FM 95,7.