Monday, June 02, 2008

Allt fram streymir.

Já tíminn flýgur áfram, Andri Dagur byrjaði í dag á leikskólanum Arnarsmára sem eins og nafnið gefur til kynna er mjög stutt frá okkur. Grímur Logi byrjaði líka í dag á sama leiksóla og þeir skemmtu sér ótrúlega vel saman. Frábært að hafa besta vin sinn á sama leikskóla. Það er ekki laust við að manni finnist drengurinn vera orðinn ansi stór þegar að hann er kominn með sitt eigið hólf á leikskólanum og honum var nokkuð sama um mig þegar að allir krakkrnir fóru að leika við hann. Svo var hann ekki síður sáttur þegar sætu fóstrurnar fóru að sinna honum, ætli hann gefi þeim rós í kveðjugöf eins og ég gerði á sínum tíma í Breiðholtinu?