Wednesday, July 25, 2007

Hinn nýi Anfield.

Mikið verður æðislega gaman að fara með son minn og Kidda og Grím Loga og Söru og Singu og Árna Jón og Ósk og Gunnsó og pabba og mömmu og Hinrik og Kötu og Fritz og Sha og Tomma typsí og Adda E og alla hina á hinn nýja völl Liverpool sem byggður er á Stanley park við hliðina á hinum gamla Anfield. Þetta glæsilega mannvirki mun hýsa leiki Liverpool í nánustu framtíð og ég mun halda uppteknum hætti með því að fara allaveganna einu sinni í tímabili á Liverpoolleik. Ég geri ráð fyrir því að þeir sem upptaldir eru komi með allaveganna einu, sumir þó oftar!