Friday, November 23, 2007

Jónshús.

Það verður mjög næs helgi, svo ekki sé meira sagt. Við erum að fara í sumarbústað 365 miðla sem heitir auðvitað Jónshús. Leggjum í hann snemma á föstudeginum og komum ekki heim fyrr en seinnipartinn á mánudeginum. Á laugardeginum kemur svo hópur af eðal fólki, bæði fjölskylda og vinir. Þá verður slegið upp grillpartýi og spilað langt fram á nótt. Ekki má gleyma pottinum en ég veðja á að Árni Jón Baldursson verði fyrstur til að segja ,,mikið rosalega er stjörnubjart hérna". Þetta verður allaveganna algjör snilld, ef að þú ert á rúntinum á suðurlandi um helgina þá er bara um að gera í að kíkja í vöfflur og heitt kakó!