Friday, April 25, 2008

Darararararara Fernando Torres Liverpool nr.9!!!

Komin heim en er samt með smá heimþrá! Þetta var æðislegt í alla staði fyrir utan það að það vantaði Sigrúnu og Ósk, en þær ætla að koma með næst hvenær svo sem það verður. Heyrðu já sumir segja að Torres þurfi bara 5.sekundur og þá er komið mark en Riise hann þarf bara góða fyrirgjöf og 1.sekundu og þá liggur boltinn í netinu. En stemmningin fyrir leik á Park og á leiknum var æðisleg, ég hef allaveganna sjaldan upplifað svona roslega gleði og fjör í Liverpool!
Þó Fernando hafi ekki skorað eitt í þessum leik þá skorar hann bara á þriðjudaginn.

Þetta voru frábær sæti, sáum bæði mörkin mjög vel.