Saturday, April 21, 2007

Svangur...

Andri Dagur er alltaf svangur, og nú er svo komið að brjóstamjólkin er bara einfaldlega ekki nóg fyrir hann. Við reynum að gefa honum graut á móti mjólkinni til að sefa hungrið en það dugir ekki heldur. Hann er búinn að vera naga á sér hendurnar síðust vikur, en þar sem að hann er farinn að koma löppunum upp í sig sem bragðast aðeins öðruvísi en hendurnar þá nýtir hann hvert tækifæri til að troða tásunum upp í sig og jappla aðeins á þeim, ekki það hann verði eitthvað saddur á því.