Thursday, January 03, 2008

Vandræðalegt..

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla, hátíðarnar fóru vel með mig. Hitti marga og borðaði góðann mat fékk mér bjór úr bjórdælunni og spilaði lengsta Trivial sögunnar þar sem að 5 manna liðið fór með sigur af hólmi. Spurning hvort að það sé tenging á milli sigursins og hversu lengi þau ræddu málin fyrir hvert svar? Ég og Andri Lefever vorum eiginlega bara 2 saman í liði vegna þess að Addi E fór snemma og Vera varð soldið full. .

Ég fór yfir árið 2007 og ég og frilla mín hún Sigrún erum sammála um að þetta hafi verið besta árið hjá okkur báðum síðan við fæddumst. Við settum okkur háleit markmið og náðum þeim, eins og sundlaugarvörðurinn sagði ,, af hverju af setja sér markmið ef að maður ætlar ekki að ná þeim´´ ? Á árinu 2008 er stefnan sett stærri markmið sem að munu nást, og árið byrjar vel. Sigrún fór í atvinnuviðtal hjá Hjartavernd og var svo boðuð í viðtal nr 2 og var svo boðin staða þar. Hún gerði náttúrulega lítið úr þessu eins hógvær og hún er, en ég benti henni á það að fullt af fólki vildi þessa stöðu en Sigrún var einfaldlega hæfust! Hennar starf felst í því að hún mun taka allskyns próf á fólki , m.a minnispróf og þunglyndispróf. Þetta gefur góð fyrirheit um árið, Sigrún ætlaði sér að fá þessa vinnu og fékk hana. Það er nefnilega svoleiðis að ef að maður vill eitthvað virkilega mikið þá fær maður það. Málið er bara að kunna að ná í það sem við viljum.
Allaveganna, ég fékk miða á Bubba og stórsveit Reykjavíkur og er búinn að bjóða doktor Flame að taka svingið með mér, hann er jú alltaf léttör..
Varðandi fyrirsögnina á þessari færslu þá lennti ég í þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að ganga inn á salerni uppi í vinnu þar sem að kúkafnykinn lagði yfir allt. Ég var í spreng og ákvað að halda niðri í mér andanum og pissa eins hratt og auðið er. Þegar að ég var að ljúka mér af þá kom ónefndur karlmaður inn á klósettið fann lyktina og horfði á mig við vaskinn. Ég reyndi að stama upp úr mér að ég hefði bara verið að pissa en aðstæðurnar urðu bara vandræðalegri. Þannig að lexía dagsins er, ekki fara inn á illa lyktandi klósett ef að hætta er á því að þú verðir ásakaður um verknaðinn. Í sambandi við þetta þá vil ég benda þér að kíkja á þessa heimasíðu http://www.2girls1cup.com/ hún Sissú kom með þetta sjóðandi heitt frá Köben!