Wednesday, June 11, 2008

Fyrsta útilega sumarsins.

Um næstu helgi verður fyrsta útilega sumarsins 2008, veit ekk nákvæmlega hvert við förum en stefnan er tekin á Suðurlandið enda er mjög góð spá framundan. Núna verður tjaldvagninn viðraður, kjötið marinerað, frisbeediskurinn bónaður og bjórinn kældur. Ef að þig langar í skemmtilega útilegu um næstu helgi þá geturðu bara hringt í mig, þú ert örugglega velkominn. Læt fylgja með myndir úr einni skemmtilegri útilegu síðasta sumar.