Friday, June 29, 2007

Þvílíka bullið....

Jæja núna ætla ég að sleppa því lofa son minn og tuða frekar aðeins. Ég horfði á versta viðtal sem ég hef séð lengi, ekki er endilega að kenna um lélegum spyrli eða óþægilegum svaranda heldur umfjöllunarefninu. Baugsmálið var enn eina ferðina til umræðu og fyrir svörum sat Tryggvi Jónsson fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs. Verið var að kryfja dóm upp á 12 mánuði skilorðsbundna sem að Tryggvi hlaut fyrir aðild sína að Baugsmálinu, upphaflega var verið að sækja Tryggva til saka vegna hundruð miljóna króna, en dómarar enduðu á að dæma Tryggva vegna rétt rúmlega 500.þús króna. Meðal annars var bent á Disneyferð Tryggva, kaup á sandölum og sláttuvél. Þvílíka bullið hef ég ekki séð lengi, þetta blessaða Baugsmál er búið að kosta ríkissjóð fleiri tugi miljóna, og engin virðist ætla að gangast við þessu. Allaveganna viðtalið er hérna... http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4301844/0