Wednesday, June 27, 2007

Gefum honum gott klapp.

Andri Dagur sýnir eitthvað nýtt á hverjum degi og í útilegunni í Þjórsárdal á laugardaginn byrjaði hann að klappa og ekki bara þetta týpíska klapp heldur voru ýmsar útgáfur eins óperuklappið, ofsakætisklappið og einbeitingarklappið. Kannski var hann að klappa fyrir því að hann er kominn með tönn númer 2 eða kannski var hann bara að klappa fyrir því að hann sé farinn að geta klappað? En best er samt þegar að hann blandar saman nýjustu trixunum þ.e. að klappa og purra með vörunum á sama tíma það er algjör snilld...